Hlaðvarpið

Informações:

Sinopsis

Podcast by Óli Jóns

Episodios

  • 96. Þóranna Jónsdóttir

    08/07/2020 Duración: 28min

    Í þessum þætti fáum við að heyra í Þórönnu Jónsdóttir en hún er markaðs- og kynningarstjóri hjá Samtökum verslunar og þjónustu. Þóranna segir okkur frá SVÞ, og leiðinni frá leiklist og söng í störf við markaðsmál, hvað efnismarkaðssetning er og margt fleira.

  • FKA Lilja Bjarnadóttir

    07/07/2020 Duración: 24min

    Í þessum þætti fáum við að kynnast Lilju Bjarnadóttur. Lilja er með fyrirtækið Sáttaleiðin sem hún hefur rekið frá árinu 2015 og er ein af fáum starfandi sáttamiðlurum á landinu. Lilja hjálpar fólki að leysa ágreiningsmál af ýmsum toga, t.d. skilnaðarmál, umgengnismál, erfðamál, viðskiptadeilur, samskiptaerfiðleika á vinnustað og margt fleira.

  • FKA Hafdís Erla Bogadóttir

    02/07/2020 Duración: 28min

    Við höldum áfram að ræða við skemmtilegar FKA konur í þetta skiptið er það frumkvöðullinn Hafdís Erla Bogadóttir. Þessa dagana er hún og hennar fólk að kynna nýtt Ratleikjaapp. Appið er unnið í samvinnu við sveitarfélög og er það Akranesbær sem ríður á vaðið í tengslum við Írska daga.

  • 95. Einar Þór Gústafsson

    02/07/2020 Duración: 33min

    Gestur minn í þetta sinn er Einar Þór Gústafsson meðstofnandi Getlocal sem er 4 ára sprotafyrirtæki sem hefur stækkað hratt. Í dag er Getlocal með 60 kúnna í 40 löndum. Einar segir að Getlocal sé einskonar Shopify fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu.

  • FKA Olga Björt Þórðardóttir

    29/06/2020 Duración: 29min

    Olga Björt Þórðardóttir er útgefandi og ritstjóri bæjarblaðsins Hafnfirðingur. Hún er með BA gráðu í íslensku og MA í blaða- og fréttamennsku. Olga Björt segir frá því hvað varð til þess að hún valdi fjölmiðlun, eftir að hafa starfað víða á vinnumarkaði til að finna sína styrkleika og réttu fjalir. Hún kynntist fjölmiðlafræðum þegar hún kláraði „loksins“ stúdentspróf 32 ára í FB, eftir að hafa stefnt á guðfræði. Hún segir frá starfsumhverfi fjölmiðla í dag, hvernig rekstur bæjarblaðs gengur fyrir sig og hversu mikilvægt er að allir finni leiðina að skemmtilegasta starfi í heimi sem lætur okkur finnast við aldrei vera í vinnunni.

  • FKA Dísa Óskarsdóttir

    24/06/2020 Duración: 27min

    Næst á dagskrá í þessari nýju þáttaröð þar sem Óli Jóns hittir FKA konur er Dísa Óskarsdóttir. Ég heimsótti Dísu í Skjaldarvík rétt við Akureyri þar sem hún rekur gistiheimili. Dísa sem er grafískur hönnuður hefur skreytt gistiheimilið með verkum sem hún sjálf hefur gert. Á Skjaldarvík er líka hestaleiga og veitingastaður, þegar ég kom í heimókn var frekar rólegt yfir staðnum enda Kovid búið að hafa mikil áhrifa á íslenska ferðaþjónustu líka og annarsstaðar í heiminum. En það var engan bilbug að finna á Dísu enda með mörg járn í eldinum.

  • 94. Magnús Hafliðason

    24/06/2020 Duración: 36min

    Magnús er í dag forstöðumaður samskipta og markaðssviðs Sýnar. Magnús starfaði í mörg ár hjá Dominos, einnig hjá Joe & the Juice ásamt því að sitja í stjórn ÍMARK og fjölda fyrirtækja. Magnús segir okkur frá árunum hjá Dominos og muninum á því að starfa að markaðsmálum annars vegar á Íslandi svo hinum norðurlöndunum.

  • FKA Sigríður Hrund Pétursdóttir

    22/06/2020 Duración: 47min

    Ný þáttaröð þar sem Óli Jóns tekur púlsinn á FKA konum. Sigríður Hrund Pétursdóttir eigandi Vinnupalla ehf, fjárfestir og FKA kona ríður á vaðið í fyrsta þætti af þessari nýju þáttaröð. Við ræðum meðal annars, lífið, menntun, fyrirtækjarekstur, fjölskyldulíf og jafnrétti. Áhugavert og skemmtilegt viðtal við Sigríði.

  • 93. Haukur Jarl Kristjánsson

    19/06/2020 Duración: 44min

    Haukur Jarl er titlaður hjá Performance Marketing Director hjá The Engine sem er hluti af Pipar/TBWA en hann hefur starfað að markaðsmálum í mörg ár. Í þessu viðtali spjöllum við Haukur um ýmislegt sem snýr að SEM (searh engine marketing) um markmiðasetningu mælingar og margt fleira. Haukur hefur starfað fyrir mörg stór vörumerki hér heima og erlendis ástamt því að vinna til verðlauna fyrir störf sýn.

  • 92. Andri Jónsson

    10/06/2020 Duración: 35min

    Andri Jónsson stofnaði Barnaloppuna ásamt Guðríði Gunnlaugsdóttur. Barnaloppan sem er að erlendri fyrirmynd er staður þar þú getur keypt og selt notaðar barnavörur. Á barnaloppan.is segir; "Í Barnaloppunni getur þú bæði keypt og selt notaða barnavöru, allt frá fötum og leikföngum til barnavagna og bílstóla. Sem seljandi leigir þú bás (erum með 205 bása til leigu) í eina viku að lágmarki og verðleggur sjálf/ur vörurnar þínar. Verðmiða með strikamerki munum við svo útvega í verslun okkar, og þegar vörurnar eru komnar í básinn sjáum við um restina. Við þjónustum viðskiptavini verslunarinnar og sjáum um söluna fyrir þig. Þú hefur möguleika á að fylgjast með sölunni þinni rafrænt, og við greiðum þér svo söluhagnaðinn með millifærslu samdægurs. Einfalt og þægilegt fyrir þig – og umhverfið allt!"

  • 91. Þórhildur Edda Gunnarsdóttir

    03/06/2020 Duración: 22min

    Þórhildur Edda eigandi og ráðgjafi hjá Parallel er gestur Óla Jóns í þætti 91. Parallel sérhæfir sig í greiningu og stjórnun stafrænna verkefna, innleiðingu nýrra verkferla og stefnumótun fyrir stafræna umbreytingu. Í þessu viðtalið kryfjum við hvað stafræn umbreyting er, afhverju hún er mikilvæg og fyrir hverja hún er. Þórhildur segir okkur frá ferlinu sem þau hjá Parallel fóru í gegnum með Kringlunni nýverið.

  • 90. Ari Steinarsson

    26/05/2020 Duración: 32min

    Ari Steinarsson er gestur þáttar númer 90, Ari kom líka í heimsókn til Óla Jóns í þætti 2. Margt hefur gerst hjá Ara síðan þá, helst ber auðvitað að nefna að hann er orðinn afi. Ari hefur einnig ásamt fleirum stofnað fyrirtækið YAY þar sem hann er framkvæmdastjóri.

  • 89. Andri Heiðar Kristinsson

    20/05/2020 Duración: 27min

    Andri Heiðar er gestur Óla í þætti 89. Umræðuefnið er verkefnið Stafrænt Ísland. á stafraent.island.is segir um verkefnið "Við vinnum að margvíslegum verkefnum sem öll stuðla að því að gera opinbera þjónustu skilvirkari og notendavænni."

  • 88. Leiry Seron

    13/05/2020 Duración: 31min

    Í þessum þætti sem er frumraun Óla að taka viðtal í gegnum fjarfundabúnað ræðir hann við Leiry Seron en hún er frá Honduras. Leiry kom til Íslands fyrir nokkrum árum og heillaðist alveg, hún hefur meðal annars búið í Reykjavík og á Þingeyri. Leiry er grafsíkur hönnuður og frá heimalandi sýnu en lagði einnig stund á nám við Listaháskóla Íslands. Leiry heldur úti hlaðvarpi sem hún kallar Creative Democracy um það hlaðvarp segir; "We talk about creativity, challenge the way we think about things, and celebrate the joy of creating, as well as the risk and courage that inevitably come along."

  • 87. Gunnar Þór Sigurjónsson

    08/05/2020 Duración: 27min

    Gunnar Þór Sigurjónsson er gestur minn í þætti 87. Gunnar Þór er upplýsingaöryggisstjóri hjá samkeppniseftirlitinu og ljósmyndari. Gunnar segir okkur frá starfi sýnu hjá samkeppniseftirlitinu og kemur með góð ráð varðandi upplýsingaöryggi. Hann segir okkur frá því hvað ber að varast til dæmis í sambandi við lykilorð og hvaða tölvupóstföng við erum að nota.

  • 86. Edda Hermannsdóttir

    07/05/2020 Duración: 30min

    Edda Hermannsdóttir kom í heimsókn og sagði okkur frá nýútkominni bók sinni Framkoma.

  • 85 Jón Ingi Gunnarsson

    30/04/2020 Duración: 22min

    Jón Ingi er verslunarstjóri hjá Iceland Engihjalla. Hann segir okkur frá áskorunum í sýnu starfi, kostina og gallana. Jón Ingi hefur starfað í 17 ár í matvöruverslunum og hefur því mikla reynslu á þessu sviði. Jón Ingi segir okkur líka frá því hvernig þau hafa þurft að bregðast við vegna Covid 19 hjá Iceland, hvernig starfsfólk og viðskiptavinir hafa brugðist við. Einnig segir Jón Ingi okkur frá því hvernig verslunarmynstur hefur breyst hjá fólki á þessum tímum.

  • 84. Ólöf Rún Tryggvadóttir

    22/04/2020 Duración: 37min

    Ólöf Rún Tryggvadóttir stofnaði Eylíf heilsuvörumerkið 2018, eftir að hafa selt fyrirtækið sitt, IceCare árið 2017. Hún segir frá sínum ferli fram að stofnun fyrirtækisins, hvers vegna hún seldi það og hvaða verkefni það eru sem hún er að fást við í dag með Eylíf og framtíðarplönin.

  • 83. Fjóla Guðrún Friðriksdóttir

    15/04/2020 Duración: 48min

    Fjóla G. Friðriksdóttir eigandi Spa of Iceland er gestur Óla í þætti 83. Fjóla rekur fyrir okkur sýna sögu í viðskiptalífinu á Íslandi. Fjóla rak ásamt manni sínum heildsölu sem seldi leikfangabíla til að byrja mér en þróaðist svo síðar út í snyrtivörur ofl. Fjóla stofnaði með annars apótek og rak um tíma brugghús og veitingastað í í Grandagarði 8.

  • 82. þáttur Paula Gould

    08/04/2020 Duración: 50min

    Í þessum þætti spjöllum við Paula Gould í annað sinn. Hún kom til mín í þátt 30 í júlí 2017. Við ræðum hvað á daga Paula hefur drifið síðan og þá helst nýja fyrirtækið hennar Float and Gather Á floatandgather.com segir: Founded by Paula Gould in the fall of 2019, Float and gather helps internationally-minded companies, entrepreneurs and artists strategize and execute on their go-to-market and growth initiatives between North America and Europe. Float and gather works with brilliant companies and projects across Europe and North America. Float and Gather’s founder Paula Gould is a go-to-market and growth strategy consultant, speaker and MarComm executive. She previously served as Head of Brand Communications at Men&Mice (acqu. by Stefnir SÍA III), CMO at Greenqloud (acqu. by NetApp), Board Member at CLARA (acqu. by Jive Software) and Principal at Frumtak Ventures, where she led international growth, brand and marketing initiatives internationally. She has extensive experience working with growth and startup

página 5 de 10